
482K
Downloads
1088
Episodes
Mín skoðun með Valtý Birni
Episodes

Aug 3, 2021
Aug 3, 2021
42 min
371.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson sem verið hefur sérfræðingur minn í Lengjudeildinni og við ræðum um sportið. Við fjöllum um stórleikinn í PepsiMax deild karla í gær, förum í leiki kvöldsins í deildinni og að sjálfsögðu er slúðrið á sínum stað. Þar veltum við t.d. upp stöðunni hjá Harry Kane, Jack Grealish og svo Ronaldo svo eitthvað sé nefnt. Njótið.

Jul 30, 2021
Jul 30, 2021
42 min
370.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag er góður dagur. Þórhallur Dan og ég ræðum um eiginlega allt í sportinu, gengi íslensku liðanna í evrópukeppninni í fótbolta, félagaskiptagluggann, Lengjudeildina, Laugardalsvöllinn, Laugardalshöllina, Olympíuleikana og ég veit ekki hvað við ræddum ekki um. Njótið helgarinnar og farið varlega.

Jul 29, 2021
Jul 29, 2021
1hr 8 min
369.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi í í tvo aðila. Sá fyrri er Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeildinni. Við förum ítarlega yfir leiki gærkvöldsins og spáum í leik kvöldsins. Í seinna símtalinu hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. VIð byrjum á að ræða um Covid19 en Tóti er eins og svo margir orðinn þreyttur á þessu öllu. Við ræðum einnig um Sambandsdeild Evrópu, PepsiMax kvenna, um Fjarðabyggð sem var eiginlega platað er varðar leikmenn sem komu til þeirra frá Búlgaríu og fleira og fleira. Njótið dagsins.

Jul 28, 2021
Jul 28, 2021
1hr 9 min
368.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við ræðum um Lengjudeildina í fótbolta. Einn leikur var í gær og svo eru tveir í kvöld. Við ræðum um leikmannamál og margt fleira. Þá heyri ég að vanda í Þórhalli Dan og við förum um víðan völl, PepsiMax kvenna, slúður og fréttir og margt margt fleira. Njótið dagsins.

Jul 27, 2021
Jul 27, 2021
52 min
367.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og við ræðum um leik KR og Fylkis í PepsiMax sem fór fram í gær. Við ræðum einnig um Lengjudeildina, þríþraut á Ol og slúður og fréttir. Þá hringi ég einnig í Andra Stein Birgisson og við ræðum um leik Þórs og Fram sem verður í Lengjudeildinni í kvöld og einnig fréttir af leikmannamálum Kórdrengja. Njótið.

Jul 26, 2021
Jul 26, 2021
44 min
366.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag heyri ég í Guðjóni Þórðarsyni þjálfara Víkings frá Ólafsvík en hann og hans menn eru enn í sóttkví og smitum fjölgar. Sendum þeim okkar bestu kveðjur. Þá heyri ég í Þórhalli Dan en við ræðum um ástandið hér heima í smitmálum, fjöllum svo um PepsiMax deildina ásamt því að fara aðeins í slúður og aðrar fréttir. Njótið.

Jul 23, 2021
Jul 23, 2021
1hr 5 min
365.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul og velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Ég hringi í Þórhall Dan Jóhannsson og við ræðum um PepsiMax deildina, fréttir og slúður og margt margt fleira. Tippari vikunnar er Kristín Sif útvarpskona á K100 en Kristín Sif er fremsta hnefaleikakona Íslands og var í vikunni valinn í fyrsta opinbera landsliðshópinn í hnefaleikum. Við ræðum um hnefaleika, tippum á leiki á Lengjunni og grínumst svo aðeins. En það er ekkert mikið grín í gangi hjá Víkingi Ólafsvík í fótbolta karla. Guðjón Þórðarson og hans menn eru komnir í sóttkví og ég hringi til Ólafsvíkur og heyri í Guðjóni. Njótið helgarinnar og farið varlega.

Jul 22, 2021
Jul 22, 2021
1hr 38 sec
364.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég í Andra Stein Birgisson og við förum yfir 13.umferð Lengjudeildarinnar sem hefst í kvöld. Andri Steinn hefur hingað til verið ótrúlega sannspár á úrslit leikja í sumar. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við tölum um leiki Breiðabliks, FH og Vals í kvöld í Sambandsdeild Evrópu. Við förum einnig í fréttir og slúður og tölum svo aðeins um Covid 19. Njótið dagsins.

Jul 21, 2021
Jul 21, 2021
36 min
363.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins hringi ég í Þórhall Dan og við förum yfir víðan völl í sportinu. PepsiMax kvenna, Ol í fótbolta kvenna, fréttir, slúður, körfubolti og svo margt margt fleira. Njótið.

Jul 20, 2021
Jul 20, 2021
43 min
362.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson, minn uppáhalds. Við ræðum um Covid19, Gylfa Sigurðsson, Ragga Sig sem er kominn í Fylki, PepsiMax karla og kvenna og margt margt fleira. Njótið dagsins.
