
482K
Downloads
1088
Episodes
Mín skoðun með Valtý Birni
Episodes

Jul 19, 2021
Jul 19, 2021
48 min
361.þáttur. Mín skoðun. Góðan og blessaðan daginn. Í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson sem hefur verið sérfræðingur minn í Lengjudeildinni. Við ræðum um stöðuna í þeirri deild og við förum einnig yfir gang mála í PepsiMax deildinni. Þá förum við aðeins í slúður og fréttir og margt fleira. Njótið.

Jul 16, 2021
Jul 16, 2021
46 min
360.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Tippari vikunnar er að þessu sinni Gylfi Þór Þorsteinsson forstöðumaður Sóttvarnahúsa. Gylfi Þór er bráðskemmtilegur maður og við tölum um Covid 19, fótbolta og hestamennsku ásamt fleiru. Þá hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson og við ræðum um Mjólkurbikarkeppni kvenna, Sambandsdeild UEFA, PepsiMax, Lengjudeildina, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið og eigið góða helgi.

Jul 15, 2021
Jul 15, 2021
1hr 7 min
359.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. í þætti dagsins hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í Lengjudeildinni. Við förum yfir leikina í 12.umferð og ræðum um fréttir og slúður í deildinni. Þá heyri ég að sjálfsögðu í Þórhalli Dan en við tölum um leiki íslensku liðanna í Sambandsdeildinni í dag og einnig um væntanlegan samning Lionel Messi við Barcelona ásamt öðrum fréttum og slúðri. Njótið.

Jul 14, 2021
Jul 14, 2021
52 min
358.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég til Ísafjarðar og heyri í Samúel Samúelssyni yfirmanni íþróttamála hjá Vestra í fótboltanum. Vestri er að leita að þjálfara og Samúel segir okkur hvernig sú leit gengur ásamt fleiru. Þá heyri ég í Þórhalli Dan og við förum yfir sviðið í boltanum. Tölum um leiki gækrvöldsins og stöðu FH í PepsiMax og margt margt fleira. Njótið.

Jul 13, 2021
Jul 13, 2021
45 min
357.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson og við ræðum um PepsiMax deildina þar sem við fjöllum nokkuð mikið um slæma stöðu ÍA og Tóti er er með hugmynd handa skagamönnum. Við ræðum um leiki kvöldsins, brotthvarf Heiðars Birnis hjá Vestra, slúður og fréttir og margt margt fleira. Njótið.

Jul 12, 2021
Jul 12, 2021
49 min
356.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Ítalía er Evrópumeistari og Messi vann loks titil með Argentínu. Þetta er aðal umfjöllunarefni dagsins hjá mér og Þórhalli Dan. Við ræðum einnig um Lengjudeildina og svo að sjálfsögðu PepsiMax deildina. Njótið.

Jul 9, 2021
Jul 9, 2021
1hr 54 min
355.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins er nóg um að vera. Tippari vikunnar er enginn annar en Þorlákur Árnason sem er nýkominn til landsins en hann var síðastliðin tvö og hálft ár yfirmaður knattspyrnumála í Hong Kong og við ræðum um veru hans þar ytra. Hörður Magnússon fræðir okkur um stórleik Argentínu og Brasilíu í úrslitum Copa America en leikurinn er annaðkvöld í beinni á Viaplay. Andri Steinn Birgisson fer yfir gang mála í Lengjudeildinni en heil umferð er á dagskrá í dag og á morgun. Að sjálfsögðu er Þórhallur Dan Jóhannsson svo á línunni en við ræðum um úrslitaleik EM á milli Ítalíu og Englands og úrslitaleikinn í Copa America ásamt því að fara í PepsiMax deildina og svo margt margt fleira. Njótið elskurnar og góða helgi.

Jul 8, 2021
Jul 8, 2021
1hr 42 sec
354.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Kristin Jakobsson okkar besta dómara fyrr og síðar og tala við hann um vítaspyrnudóminn í leik Englands og Danmerkur á EM í gær. Við ræðum um það atvik sem og atvikið með að tveir boltar voru inná vellinum í aðdraganda dómsins og margt margt fleira. Þá hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson og við fjöllum um leikinn, vítaspyrnudóminn þar sem við Tóti erum ósammála. Við ræðum um íslensku liðin í evrópukeppninni en þrjú lið eru að leika í dag, FH, Stjarnan og Breiðablik. Slúður og fréttir er svo á sínum stað og margt fleira. Njótið.

Jul 7, 2021
Jul 7, 2021
48 min
353.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Ég og Þórhallur Dan förum yfir sviðið í fótboltanum. EM, Copa America, tipparakeppnin okkar er tekin fyrir, slúður, Krummasögur, PepsiMax kvenna og margt margt fleira. Njótið og eigið góðan dag.

Jul 6, 2021
Jul 6, 2021
1hr 4 min
352.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan og við förum yfir sviðið í boltanum, slúður og bara allt saman. Mjög gaman. Þá hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í Lengjudeildinni og við förum yfir leikina í 10.umferð. Við tölum einnig um fréttir og slúður í deildinni. Njótið.
