Episodes

Oct 12, 2021
421.þáttur. Mín skoðun. 12102021
Oct 12, 2021
Oct 12, 2021
44 min
421.þáttur. Mín skoðun. Góðan daginn. Ég og Þórhallur Dan förum í dag yfir landsleikinn í gær. Tóti segir sitt mat á leik liðsins og dregur ekkert undan að vanda. Við ræðum einnig um 21.árs liðið sem mætir Portúgal í dag á Víkingsvellinum og við erum bara nokkuð bjartsýnir fyrir hönd okkar pilta. Við spjöllum einnig um handboltann í gær og svo förum við í fréttir og slúður og Tóti er ekki alveg sáttur við Ole Gunnar Solskjaer stjóra Man.Utd. Njótið.

Oct 11, 2021
420.þáttur. Mín skoðun. 11102021
Oct 11, 2021
Oct 11, 2021
51 min
420.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag förum ég og Þórhallur Dan víða. Við ræðum um íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Förum yfir leikinn gegn Armeníu, tökum fyrir leikinn í kvöld og einnig hvað er að gerast með liðið okkar. Við ræðum einnig um innviði KSÍ, Ómar Ingi handboltakappi kemur við sögu og svo margt margt fleira. Tóti talar út úr skegginu í dag. Njótið.

Oct 8, 2021
419.þáttur. Mín skoðun. 08102021
Oct 8, 2021
Oct 8, 2021
45 min
419.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag ræði ég við Þórhall Dan Jóhannsson og við förum um víðan völl. Tölum um stjórn KSÍ, formann KSÍ, Breiðablik-PSG í meistaradeild kvenna og spyrjum afhverju var leikurinn ekki sýndur í sjónvarpi á Íslandi. Við förum aðeins í þjálfaramál og tökum fyrir eigendaskipti Newcastle og svo að sjálfsögðu landsleik Íslands og Armeníu. Tóti stillir upp sínu liði og kemur með spá. Njótið helgarinnar.

Oct 7, 2021
418.þáttur. Mín skoðun. 07102021
Oct 7, 2021
Oct 7, 2021
1hr 2 min
418.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag byrja ég á að heyra í Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ. Við ræðum um nýjan styrktaraðila sambandsins, tölum um fjárhagsstöðuna og svo um stöðuna á heimaleikjum karla-og kvennalandsliðanna okkar. Verður t.d. leikurinn gegn Rússlandi í HM karla sem á að fara fram í nóvember hér heima, leikinn á erlendis? Því næst heyri ég í Benedikt Guðmundssyni þjálfara karlaliðs Njarðvíkur í körfuboltanum en Njarðvík er spáð efsta sæti í deildarkeppninni. Benni fer yfir stöðuna á liðinu sínu og margt fleira. Að lokum hringi ég svo í Þórhall Dan og við förum um víðan völl að vanda. Blikastelpur í meistaradeildinni, leikmannamál, þjálfaramál, Krummasögur og slúður svo eitthvað sé nefnt. Njótið.

Oct 6, 2021
417.þáttur. Mín skoðun. 06102021
Oct 6, 2021
Oct 6, 2021
56 min
417.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Ásthildi Helgadóttur og við ræðum um leik Breiðabliks og PSG í meistaradeild kvenna í fótbolta en leikur liðanna fer fram á Kópavogsvelli. Ásthildur útskýrir í viðtalinu hvert ljósmagnið af flóðljósunum á vellinum þarf að vera til að UEFA samþykki en Breiðablik fékk undanþágu frá UEFA. Þá hringi ég í Þórhall Dan og við förum um víðan völl að vanda. Landslið karla er tekið fyrir, valið og svo einnig þjálfarinn og margt í kringum það allt saman. Njótið.

Oct 5, 2021
416.þáttur. Mín skoðun. 05102021
Oct 5, 2021
Oct 5, 2021
34 min
416.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Ég og Þórhallur Dan spjöllum saman í dag. Við förum í KSÍ mál, landsliðið, landsliðsval, Krummasögur, enska boltann og Sir Alex og tölum einnig um nýjan formann KSÍ og svo margt margt fleira. Njótið.

Oct 4, 2021
415.þáttur. Mín skoðun. 04102021
Oct 4, 2021
Oct 4, 2021
1hr 13 min
415.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Hermanni Hreiðarssyni sem er nýr þjálfari ÍBV í meistaraflokki karla í knattspyrnu. Við ræðum um ráðningarferlið, eyjarnar, samninginn og hans persónulega líf ásamt fleiru. Því næst hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við spjöllum um nánast allt. KSÍ þingið, landsliðið, handboltann, Mjólkiurbikarinn, dómgæslu, enska boltann og Tóti sem fyrri daginn liggur ekki á skoðunum sínum. Hann er með margar spurningar varðandi landsliðið og bráðabirgðarstjórn KSÍ. Njótið.

Oct 1, 2021
414.þáttur. Mín skoðun. 01102021
Oct 1, 2021
Oct 1, 2021
1hr 8 min
414.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Tippari vikunnar er gleðigjafinn Sóli Hólm. Hann er mikill púllari og fer ekki leynt með það sá yndislegi kappi. Sóli tippar á 5 leiki á Lengjunni og við spjöllum heilmikið. Jóhannes Lange fer svo yfir gang mála með mér yfir Final 4 í handboltanum hér heima og þar er af nógu að taka. Andri Steinn Birgisson er svo á línunni og við ræðum um leikina í enska boltanum um helgina sem og um úrsltaleik kvenna í Mjólkurbikarnum, Breiðablik-Þróttur, og undanúrslitin í karlaflokki í Mjólkurbikarnum sem eru á morgun. Þetta og margt margt fleira. Njótið helgarinnar.

Sep 30, 2021
413.þáttur. Mín skoðun. 30092021
Sep 30, 2021
Sep 30, 2021
50 min
413.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég fyrst í Jóhannes Lange og við ræðum um Final 4 í handboltanum en Valur-Fram, KA/Þór-FH mætast í kvennaflokki í dag. Við förum yfir stöðun og ræðum einnig töluvert um dapra stöðu þjóðarhallar sem var einhverntíma Laugardalshöll. Þar er allt í steik eða þannig. Því næst hringi ég í Andra Stein Birgisson sérfræðing minn í fótboltanum. Við tölum um meistaradeildina í gær og spjöllum einnig um þjálfarakapalinn sem og félagaskipti leikmanna ásamt fleiru. Njótið.

Sep 29, 2021
412.þáttur. Mín skoðun. 29092021
Sep 29, 2021
Sep 29, 2021
39 min
412.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag spjalla ég við Andra Stein Birgisson. Við förum um víðan völl. Meistaradeildin er tekin fyrir eftir leiki gærkvöldsins og þá spáir Andri Steinn í leiki kvöldsins. Við tölum um Val í evrópukeppninni í handbolta og að sjálfsögðu tölum við um þjálfarakapalinn en þar eru nokkur störf enn laus. Njótið.

