Episodes

Sep 28, 2021
411.þáttur. Mín skoðun. 28092021
Sep 28, 2021
Sep 28, 2021
1hr 9 min
411.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni. Við spjöllum um Meistaradeildina í fótbolta og leiki kvöldsins. Förum í slúður og fréttir og svo þjálfarakapalinn mikla svo eitthvað sé nefnt. Því næst hringi ég í Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara í handbolta. Guðmundur hætti nýverið hjá þýska liðinu Melsungen en tekur við danska liðinu Fredericia næsta sumar. Við ræðum um viðskilnað hans við þýska liðið, landsliðið, samninginn við Fredericia og svo margt, margt fleira. Njótið.

Sep 27, 2021
410.þáttur. Mín skoðun. 27092021
Sep 27, 2021
Sep 27, 2021
47 min
410.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í dag ræði ég við Andra Stein Birgisson. Við spjöllum um lokin á PepsiMax deildinni þar sem skagamenn björguðu sér frá falli og Víkingur varð meistari. Við ræðum um þjálfarakapalinn, leikmenn, Krummasögur, enska boltann og margt fleira. Njótið.

Sep 24, 2021
409.þáttur. Mín skoðun. 24092021
Sep 24, 2021
Sep 24, 2021
1hr 4 min
409.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Tippari vikunnar í dag er enginn annar en Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins. Hann er mikill Arsenal aðdáandi en synir hans halda með Liverpool. Sigurður Ingi tippar á 5 leiki á Lengjunni og við spjöllum aðeins um pólitíkina og margt fleira. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni sérfræðingi mínum í boltanum. Við förum yfir úrslitaumferðina í PepsiMax deild karla, tökum fyrir enska boltann og margt margt fleira. Að síðustu hringi ég í Úlfar Jónsson golfkennara með meiru en Ryder keppnin í golfi fer fram um helgina. Úlfar verður að lýsa keppninni og hann veit allt um þessa keppni á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Njótið helgarinnar.

Sep 23, 2021
408.þáttur. Mín skoðun. 23092021
Sep 23, 2021
Sep 23, 2021
39 min
408.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag heyri ég í Andra Steini Birgissyni. Við ræðum um enska boltann og þá um deildarbikarinn, íslenska boltann, Lengjudeildina og svo um næsta laugardag þegar lokaumferðin í PepsiMax deild karla fer fram. Njótið.

Sep 22, 2021
407.þáttur. Mín skoðun. 22092021
Sep 22, 2021
Sep 22, 2021
46 min
407.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Það eru stórtíðindi í íþróttaheiminum hér heima í dag. Vanda Sigurgeirsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns KSÍ. Vanda er í spjalli við mig í þætti dagsins. Þá heyri ég í Andra Steini Birgissyni og við ræðum um framboð Vöndu, Krummasögur eru á sínum stað, vangaveltur um þjálfarakapalinn mikla, enska boltann, handboltann í gær hjá Val og Lemgo og svo margt margt fleira. Njótið.

Sep 21, 2021
406.þáttur. Mín skoðun. 21092021
Sep 21, 2021
Sep 21, 2021
56 min
406.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl öllsömul. Í þætti dagsins heyri ég fyrst í Þórhalli Dan og við ræðum um PepsiMax karla og þá staðreynd að Fylkir féll í Lengjudeildina í gærkvöldi. Við tölum einnig um rauða spáldið sem Birnir Snær leikmaður HK fékk í leik gærkvöldsins og einnig um kvennalandsleiksinnn í kvöld. Því næst heyri ég í Snorra Steini Guðjónssyni þjálfara Íslandsmeistara Vals í handbolta en Valur mætir bikarmeisturum Þýskalands, Lemgo, í kvöld í undakeppni Evrópudeildarinnar. Að síðustu heyri ég svo í handboltagoðsögninni Sigurði Val Sveinssyni,(Sigga Sveins), um leikinn í Origohöllinni í kvöld en Siggi lék um árabil með báðum þessum liðum og er goðsögn hjá Lemgo. Njótið.

Sep 20, 2021
405.þáttur. Mín skoðun. 20092021
Sep 20, 2021
Sep 20, 2021
50 min
405.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sviðið í sportinu. PepsiMax deildin, Lengjudeildin, 2.deildin, 3.deildin, körfubolti, handbolti, enski boltinn, ítalski boltinn svo eitthvað sé nefnt. Tóti ræðir nokkuð um Fylki og stöðu félagsins og svo einnig um afhverju KSÍ setur ekki fallbaráttuleikina á sama tíma nú um helgina. Njótið.

Sep 17, 2021
404.þáttur. Mín skoðun. 17092021
Sep 17, 2021
Sep 17, 2021
1hr 14 min
404.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Tippari vikunnar í dag er Ásmundur Einar Daðason, Félags-og barnamálaráðherra. Við ræðum um fótboltann, körfuboltann og íþróttir almennt og svo um pólitíkina auk þess að tippa á 5 leiki á Lengjunni. Því næst hringi ég í Þórhall Dan og við förum yfir Litlu-tippkeppnina okkar, spjöllum um PepsiMax, enska boltann, handboltann, körfuboltann og slúður og svo margt, margt fleira. Tóti er snillingur. Þriðji viðmælandinn í dag er svo Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeildinni. Við förum yfir leiki morgundagsins, tökum einnig fyrir 2.deild og 3.deild og spjöllum aðeins um slúður í þjálfarakapalnum. Njótið helgarinnar.

Sep 16, 2021
403.þáttur. Mín skoðun. 16092021
Sep 16, 2021
Sep 16, 2021
51 min
403.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Vestramenn eru kátir í dag eftir sigur á Val í Mjólkurbikarnum í gær. Að því tilefni hringi ég í Herra Vestra, Samúel Samúelsson, og við spjöllum um leikinn, þjálfaramál, leikmannamál og margt fleira. Því næst hringi ég í Þórhall Dan Jóhannsson. Við förum yfir gang mála í Mjólkurbikarnum í gær, Meistaradeildina, handboltann, Evrópudeildina og svo þjálfarakapalinn hér innanlands í fótboltanum. Njótið.

Sep 15, 2021
402.þáttur. Mín skoðun. 15092021
Sep 15, 2021
Sep 15, 2021
1hr 1 min
402.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir ansi margt. Við byrjum á Meistaradeildinni, förum síðan í Mjólkurbikarinn og blöndum Heimi Guðjóns inní þá umræðu. Lárus Orri Sigurðsson er ekki alveg sáttur með Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara og sendi honum kveðju á Twitter í gær. Við ræðum það aðeins. Undanúrslit í bikarnum í handbolta eru klár og við tölum um Laugardalshöll og allt það bull. Inní það tal okkar blandast svo einhvernveginn tal okkar um lífeyrissjóði og þá steypu hér á landi og allt í kringum það. Við erum nú meiri mennirnir, ég og Tóti Dan. Njótið.

