Episodes

9 minutes ago
1072.þáttur.Mín skoðun. 13032026
9 minutes ago
9 minutes ago
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni fótboltasérfræðingi og við förum yfir gang mála í meistaraddeildinni, enska boltanum og þeim íslenska. Einar Jónsson handboltagúrú er í spjalli um lokaumferðina í deildarkeppninni í Olísdeildinni. Við förum einnig yfir gang mála í Olísdeild kvenna og þýska handboltanum. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um Bónsudeildina í körfubolta þar sem spennan er mikil og við tölum einnig um Formúluna og enska boltann. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

4 days ago
1071.þáttur.Mín skoðun. 10032026
4 days ago
4 days ago
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Þórhalli Dan og við förum um víðan völl í fótboltanum, meðal annars meistaradeildina. Einar Jónsson handboltagúrú er á línunni og við förum yfir gang mála í Olísdeildinni, kvennalandsliðinu og þýska handboltanum ásamt að fara í karlalandsliðið. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um Bónusdeildina, enska boltann og meistaradeildina ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Friday Mar 06, 2026
1070.þáttur.Mín skoðun. 06032026
Friday Mar 06, 2026
Friday Mar 06, 2026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni og við ræðum um íslenska boltann, enska boltann og einnig þann ítalska ásamt fleiru. Einar Jónsson í spjalli um Olísdeildina, kvennalandsliðið, meistaradeildina og þýska handboltann. Kristján Einar Kristjánsson Formúlu 1 gúrú er í viðtali en keppnistímabilið í Formulu 1 kappakstrinum hefst um helgina. Svanhvít Valtýs er svo á línunni og við tölum um Bónusdeildina, kvennalandsliðið í fótbolta og fréttir og slúður í boltanum. Þetta og ýmislegt fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Tuesday Mar 03, 2026
1069.þáttur.Mín skoðun. 03032026
Tuesday Mar 03, 2026
Tuesday Mar 03, 2026
Í þætti dagsins heyri ég í Þórhalli Dan og við ræðum um enska boltann, íslenska boltann og margt fleira. Einar Jónsson er á línunni og við spjöllum um þýska handboltann, Olísdeildina og kvennalandsliðið í handknattleik. Benedikt Guðmundsson er svo í viðtali um íslenska karlalandsliðið í körfubolta og einnig um Bónusdeildina ásamt fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Friday Feb 27, 2026
1068.þáttur.Mín skoðun. 27022026
Friday Feb 27, 2026
Friday Feb 27, 2026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú og við ræðum um landsleikinn gegn Litháen í kvöld og margt fleira tengt leiknum. Haraldur Hróðmarsson fótboltasérfræðingur er á línunni um evrópuboltann, enska boltann, íslenska landsliðið og Lengjubikarinn og að lokum hringi ég til Þýskalands í Einar Jónsson handboltaþjálfara. Við ræðum um bikarinn hér heima og svo þýska handboltann. Takk fyrir að hlusta og góða helgi.

Tuesday Feb 24, 2026
1067.þáttur.Mín skoðun. 24022026
Tuesday Feb 24, 2026
Tuesday Feb 24, 2026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Haraldi Hróðmarssyni og við tölum um enska boltann, meistaradeildina, íslenska boltann og margt fleira. Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ er í spjalli um ársþing sambandsins sem er á föstudag. Það er mikið um að vera hjá sambandinu, dómaramál, ný heimasíða, ársskýrsla, leikjaniðurröðun, Laugardalsvöllur og margt fleira. Óskar Bjarni Óskarsson handboltagúrú er svo á línunni vegna undanúrslita bikarkeppni karla og kvenna og ekki má gleyma yngri flokkunum. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Friday Feb 20, 2026
1066.þáttur.Mín skoðun. 20022026
Friday Feb 20, 2026
Friday Feb 20, 2026
Heil og sæl. Í dag eru fjórir viðmælendur. Kristinn Kærnested, Einar Jónsson, Benedikt Guðmundsson og Svanhvít Valtýs. Við ræðum um enska boltann, meistaradeildina, Olísdeildirnar, meistaradeildina í handbolta, Bónusdeildina í körfubolta, erlenda leikmenn í körfuboltanum og svo fréttir og slúður úr enska boltanum og þar er nú slatti um að vera. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Tuesday Feb 17, 2026
1065.þáttur.Mín skoðun. 17022026
Tuesday Feb 17, 2026
Tuesday Feb 17, 2026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég fyrst í Einari Jónssyni handboltagúrú og við ræðum um Olísdeildina og einnig um þýska handboltann ásamt fleiru. Þórhallur Dan er á línunni og við tölum um meistaradeildina, enska boltann, heimasíðu KSÍ og fleira. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um Bónusdeildina og við förum einnig í fréttir og slúður í fótboltanum. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Takk fyrir að hlusta.

Friday Feb 13, 2026
1064.þáttur.Mín skoðun. 13022026
Friday Feb 13, 2026
Friday Feb 13, 2026
Góðan dag. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested og við ræðum um enska boltann, íslenska boltann, landsliðið og svo er ein góð Krummasaga ásamt fleiru. Einar Jónsson handboltagúrú er á línunni og við spjöllum um Olísdeildina og einnig um þýsku deildina í handbolta. Svanhvít Valtýs er svo í spjalli um körfuboltann hér heima ásamt því að við förum í fréttir og slúður. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Tuesday Feb 10, 2026
1063.þáttur. Mín skoðun. 10022026
Tuesday Feb 10, 2026
Tuesday Feb 10, 2026
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Einari Jónssyni og við ræðum um Olísdeildina í handbolta og einnig um þýsku deildina. Haraldur Hróðmarsson er á línunni og við ræðum landsliðsval fyrir æfingaleik karlalandsliðsins í fótbolta sem er gegn Mexíkó. Við tölum einnig um Lengjubikarinn og svo enska boltann. Svanhvít Valtýs er svo á línunni og við spjöllum um körfuboltann hér heima og förum í áhugaverða færslu Gríms Atlasonar á Facebook um kostnað liðanna í Bónusdeildum karla og kvenna vegna erlendra leikmanna. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

