Episodes

Feb 3, 2022
500.þáttur. Mín skoðun. 03022022
Feb 3, 2022
Feb 3, 2022
39 min
500.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í dag hringi ég í Þórhall Dan og við komum víða við. Byrjum á að tala um þjálfaramál Vestra, förum síðan í aðstöðumál og fleira því tengt. Fótboltinn hér heima, handboltinn og körfuboltinn, úthlutun styrkja ÍSÍ, fréttir utan úr heimi og slúður og margt fleira. Njótið.

Feb 2, 2022
499.þáttur. Mín skoðun. 02022022
Feb 2, 2022
Feb 2, 2022
46 min
499.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Velkomin til leiks. Í dag förum ég og Þórhallur Dan um víðan völl. Mál Mason Greenwood, Aubameyang, KSÍ-þingið, Krummasögur, fréttir og slúður og margt fleira. Njótið.

Feb 1, 2022
497.þáttur. Mín skoðun. 01022022
Feb 1, 2022
Feb 1, 2022
33 min
497.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir það helsta í sportinu. Félagaskiptaglugginn í fótboltanum lokaði í gær í Evrópu. Við förum yfir það helsta. KSÍ kemur við sögu en þar á bæ er búist við nokkrum breytingum á næstunni. Körfuboltinn er tekinn fyrir og margt margt fleira. Njótið.

Jan 31, 2022
497.þáttur. Mín skoðun. 31012022
Jan 31, 2022
Jan 31, 2022
44 min
497.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins hringi ég til Ísafjarðar og heyri í herra Vestra, Samúel Samúelssyni , en vestramenn eru þjálfaralausir eftir að Jón Þór Hauksson fékk sig lausan og fór til ÍA. Því næst heyri ég í Þórhalli Dan og við ræðum um handboltalandsliðið, fótbolta, þjálfaramál Vestra, enska boltann, slúður, tennis og margt margt fleira. Njótið.

Jan 28, 2022
496.þáttur. Mín skoðun. 28012022
Jan 28, 2022
Jan 28, 2022
1hr 10 min
496.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Það er stór dagur í dag. Eggert Ingólfur Herbertsson formaður knattspyrnudeildar ÍA er á línunni vegna þjálfaramála en Jóhannes Karl er hættur og orðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari. Skagamenn eru ekki sáttir með vinnubrögð KSÍ. Strákarnir okkar í landsliðinu í handbolta mæta Noregi í leik um 5.sæti á EM. Patrekur Jóhannesson er á línunni um handboltann og einnig Siggi Sveins og svo heyri ég að sjálfsögðu í Þórhalli Dan. Nóg um að vera og ÁFRAM ÍSLAND.

Jan 27, 2022
495.þáttur. Mín skoðun. 27012022
Jan 27, 2022
Jan 27, 2022
54 min
495.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég fyrst í handboltagoðsögninni Sigga Sveins og við förum yfir gærdaginn á EM í handbolta. Tölum um íslenska liðið og svo undarlega dani. Síðan hringi ég að sjálfsögðu í Þórhall Dan og við tölum aðeins um handboltann. Við ræðum svo um KSÍ og nýjan aðstoðarlandsliðsþjálfara, úrslitaleikina í Fótbolta.net mótinu og margt, margt fleira. Njótið.

Jan 26, 2022
494.þáttur.Mín skoðun. 2602022
Jan 26, 2022
Jan 26, 2022
53 min
494.þáttur.Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins förum ég og Þórhallur Dan yfir sviðið. Tölum um Akureyri, KSÍ, handboltann og fleira og fleira. Siggi Sveins er svo á línunni vegna landsliðsins okkar sem leikur í dag gegn Svartfjallalandi. ÁFRAM ÍSLAND.

Jan 25, 2022
493.þáttur. Mín skoðun. 25012022
Jan 25, 2022
Jan 25, 2022
59 min
493.þáttur. Mín skoðun. Velkomin til leiks. Í þætti dagsins hringi ég í Þórhall Dan og við tölum um íslenska handboltalandsliðið, þjálfaraskipti Watford, Balotelli, Vlahovic og fleira og fleira. Siggi Sveins er á línunni vegna EM og spáir í leiki dagsins og að lokum heyri ég í Patreki Jóhannessyni um íslenska landsliðið á EM og veltum fyrir okkur möguleikum morgundagsins. ÁFRAM ÍSLAND.

Jan 24, 2022
492.þáttur. Mín skoðun. 24022022
Jan 24, 2022
Jan 24, 2022
1hr 5 min
492.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl elskurnar. Í þætti dagsins eru þrír viðmælendur. Fyrstur er Jónatan Magnússon þjálfari KA en hann og hans menn eru nýkomnir frá Ungverjalandi þar sem þeir léku tvo æfingaleiki og fóru á leik með íslenska landsliðinu. Siggi Sveins er á sínum stað um EM og spáir í leiki dagsins og leikinn gegn Króatíu. Þórhallur Dan er svo að sjálfsögðu á línunni og við ræðum um enska boltann, aðeins um ítalska boltann og svo íslenska landsliðið í handbolta. ÁFRAM ÍSLAND.

Jan 21, 2022
491.þáttur. Mín skoðun. 21012022
Jan 21, 2022
Jan 21, 2022
1hr 16 min
491.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Gísla Þorgeiri Kristjánssyni landsliðsmanni í handbolta en hann er í einangrun með Covid í Búdapest. Siggi Sveins er á línunni og við ræðum um EM, leiki dagsins og leiki Íslands í gær og á morgun. Að lokum er svo Þórhallur Dan á línunni. Við tölum um EM í handbolta, smá Covid umræða, enski boltinn, ítalski boltinn og margt fleira. Njótið helgarinnar og til hamingju með Bóndadaginn.

