Episodes

Tuesday Jan 27, 2026
1060.þáttur.Mín skoðun.27012026
Tuesday Jan 27, 2026
Tuesday Jan 27, 2026
Heil og sæl. Í dag er íslenska karlalandsliðið í handbolta aðalmálið en við fjöllum að sjálfsögðu um enska boltann, íslenska fótboltann, Bónusdeildina í körfubolta, meistaradeildina í fótbolta, fréttir og slúður og margt fleira. Viðmælendur dagsins eru; Siggi Sveins, Haraldur Hróðmarsson, Einar Jónsson, Þórhallur Dan og Svanhvít Valtýs. Njótið og takk fyrir að hlusta. ÁFRAM ÍSLAND.

Friday Jan 23, 2026
1059.þáttur.Mín skoðun.23012026
Friday Jan 23, 2026
Friday Jan 23, 2026
Heil og sæl. Í dag eru sex viðmælendur, Kristinn Kærnested, Siggi Sveins, Einar Jónsson, Haraldur Hróðmarsson, Svanhvít Valtýs og Þórhallur Dan. Aðal umræðan er EM í handbolta en við förum einnig í enska boltann, meistaradeildina, íslenska fótboltann, Bónusdeildina í körfubolta og margt fleira. Takk fyrir að hlusta og ÁFRAM ÍSLAND.

Tuesday Jan 20, 2026
1058.þáttur.Mín skoðun.20012026
Tuesday Jan 20, 2026
Tuesday Jan 20, 2026
Heil og sæl. Í þætti dagsins er aðalmálið landsleikurinn í kvöld, Ísland-Unvergjaland á EM í handbolta. Einnig er vel farið yfir gang mála í fótboltanum, bæði utanlands sem og hér heima. Bónusdeildin í körfubolta er á sínum stað og margt fleira. Viðmælendur eru; Siggi Sveins, Haraldur Hróðmarsson, Einar Jónsson, Þórhallur Dan og Svanhvít Valtýs. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Friday Jan 16, 2026
1057.þáttur. Mín skoðun. 16012026
Friday Jan 16, 2026
Friday Jan 16, 2026
Heil og sæl. Í dag eru fimm viðmælendur og aðal málið er íslenska karlalandsliðið okkar í handbolta sem hefur leik á EM í dag. Enski boltinn er til umræðu, leikjaniðurröðun í Bestu deildinni, Bónusdeildin í körfubolta og margt fleira. Viðmælendur og spámenn eru: Haraldur Hróðmarsson, Einar Jónsson, Siggi Sveins, Svanhvít Valtýs og Þórhallur Dan. Takk fyrir að hlusta og ÁFRAM ÍSLAND.

Tuesday Jan 13, 2026
1056.þáttur.Mín skoðun.13012026
Tuesday Jan 13, 2026
Tuesday Jan 13, 2026
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Kristni Kærnested og við tölum um enska boltann og einnig þann íslenska ásamt fleiru. Einar Jónsson og Siggi Sveins eru í spjalli um íslenska karlalandsliðið í handknattleik en Ísland leikur gegn Ítalíu á EM á föstudag. Svanhvít Valtýs er svo á línunni um körfuboltann og einnig um fréttir og slúður í fótboltanum ásamt ýmsu fleiru. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Friday Jan 09, 2026
1055.þáttur.Mín skoðun.09012026
Friday Jan 09, 2026
Friday Jan 09, 2026
Heil og sæl og gleðilegt nýtt ár. Í þætti dagsins eru fjórir viðmælendur. Kristinn Kærnested, Haraldur Hróðmarsson, Svanhvít Valtýs og Siggi Sveins. Við komum víða við. Enski boltinn, ítarlega er fjallað um íslenska boltann, Bónusdeildin í körfubolta, fréttir og slúður og svo handboltalandsliðið okkar sem hefur leik eftir viku í úrslitakeppni EM. Þetta og sitthvað fleira er í þessum fyrsta þætti nýs árs. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Monday Dec 29, 2025
1054.þáttur.Mín skoðun. 29122025
Monday Dec 29, 2025
Monday Dec 29, 2025
Heil og sæl. Í dag eru fimm viðmælendur, Kristinn Kærnested, Haraldur Hróðmarsson, Þórhallur Dan, Einar Jónsson og Svanhvít Valtýs. Þau velja sinn íþróttamann ársins ásamt því að við spjöllum um handbolta og fótbolta og fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta og GLEÐILEGT ÁR.

Friday Dec 19, 2025
1053.þáttur.Mín skoðun. 19122025
Friday Dec 19, 2025
Friday Dec 19, 2025
Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kærnested, Haraldi Hróðmarssyni, Þórhalli Dan, Einari Jónssyni og Svanhvíti Valtýs. Það er nóg um að tala, enski boltinn og íslenski boltinn, Krummasaga frá Halla Hróðmars, bikarinn í handbolta og landsliðið í handbolta, Bónusdeildin í körfubolta og margt margt fleira. Njótið og takk fyrir að hlusta. Gleðileg jól.

Friday Dec 12, 2025
1052.þáttur.Mín skoðun. 12122025
Friday Dec 12, 2025
Friday Dec 12, 2025
Velkomin til leiks. Í þætti dagsins heyri ég í fjórum aðilum. Víðir Sigurðsson ræðir við mig um bókina Íslensk Knattspyrna 2025 sem er nýkomin út. Haraldur Hróðmarsson er á línunni um evrópuboltann, íslenska fótboltann, Val og FH og svo enska fótboltann. Einar Jónsson spjallar við mig um Olísdeildina, HM kvenna og þýska handboltann og Benedikt Guðmundsson ræðir við mig um Bónusdeildina í körfubolta. Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

Tuesday Dec 09, 2025
1051.þáttur.Mín skoðun. 09022025
Tuesday Dec 09, 2025
Tuesday Dec 09, 2025
Heil og sæl. Í þætti dagsins eru fjórir viðmælendur. Kristinn Kærnested ræðir við mig um enska boltann, meistaradeildina og einnig um Mo Salah hjá Liverpool. Kristján Einar Kristjánsson Formúlu 1 sérfræðingur, talar við mig um Formúluna sem lauk um helgina og þær breytingar sem verða á bílinum fyrir næstu heimsmeistarakeppni. Einar Jónsson talar við mig um Olísdeildina í handbolta og við förum yfir gang mála í HM kvenna sem nú stendur sem hæst. Svanhvít Valtýs ræðir svo við mig um Bónusdeildina í körfubolta en aldeilis óvænt úrslit urðu um helgina og við spáum í næstu umferð. Þetta og margt margt fleira er í þætti dagsins. Njótið og takk fyrir að hlusta.

