Episodes

Friday Jan 27, 2023
726.þáttur. Mín skoðun. 27012023
Friday Jan 27, 2023
Friday Jan 27, 2023
Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera. Óskar Bjarni Óskarsson handboltaþjálfari og Siggi Sveins goðsögn eru á línunni um HM í handbolta en keppni lýkur þar á sunnudag. Böddi Bergs er svo í spjalli um fótboltann í útlöndum ásamt því að við tölum aðeins um handboltalandsliðið okkar og margt fleira. Njótið helgarinnar.

Thursday Jan 26, 2023
725.þáttur. Mín skoðun. 26012023
Thursday Jan 26, 2023
Thursday Jan 26, 2023
Heil og sæl. Í dag heyri ég í Svanhvíti Valtýsd. og við spjöllum um enska boltann, þýska boltann, ítalska boltann, Mourinho og margt fleira. Þá heyri ég í Sigga Sveins og við tölum um HM í handbolta en á morgun eru undanúrslit mótsins og við ræðum meðal annars um 17 marka sigur dana á ungverjum. Njótið dagsins.

Monday Jan 23, 2023
724.þáttur. Mín skoðun. 23012023
Monday Jan 23, 2023
Monday Jan 23, 2023
Heil og sæl. Í dag er uppgjör eftir HM í handbolta hjá íslenska landsliðinu. Siggi Sveins og Viggó Sig. tjá sig um mótið og leik okkar manna. Þá er Böddi Bergs á línunni og við ræðum um handboltann og einnig um enska boltann þar sem skyttur Arsenal halda áfram að fara á kostum. Njótið dagsins.

Friday Jan 20, 2023
723.þáttur. Mín skoðun. 20012023
Friday Jan 20, 2023
Friday Jan 20, 2023
Heil og sæl og til hamingju með daginn bændur þessa lands. Í dag er aðal umfjöllunin um Ísland-Svíþjóð á HM í handbolta sem er í kvöld. Handbolta goðsagnirnar Siggi Sveins og Viggó Sig. eru á línunni. Böddi Bergs er svo á línunni um leikinn í kvöld sem og enska boltann um helgina. ÁFRAM ÍSLAND.

Wednesday Jan 18, 2023
722.þáttur. Mín skoðun. 18012023
Wednesday Jan 18, 2023
Wednesday Jan 18, 2023
Heil og sæl. Í dag er fjör. Svanhvít er á línunni um enska boltann, Söru Bjarkar-málið og margt fleira. Handbolta goðsagnirnar Siggi Sveins og Valdi Gríms eru svo á línunni en Valdi og fjölskylda er á línunni á ferðalagi sínu frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar. ÁFRAM ÍSLAND.

Monday Jan 16, 2023
721.þáttur. Mín skoðun. 16012023
Monday Jan 16, 2023
Monday Jan 16, 2023
Heil og sæl. Í dag heyri ég í þremur snillingum. Siggi Sveins og Viggó Sig. handboltagoðsagnir eru á línunni og við ræðum um HM og strákana okkar. Að lokum heyri ég svo í Bödda Bergs og við tölum um handboltalandsliðið, bikarinn í körfu, enska boltann og svo margt fleira. Njótið og ÁFRAM ÍSLAND.

Monday Jan 16, 2023
721.þáttur. Mín skoðun. 16012023
Monday Jan 16, 2023
Monday Jan 16, 2023
Heil og sæl. Í dag heyri ég í þremur snillingum. Siggi Sveins og Viggó Sig. handboltagoðsagnir eru á línunni og við ræðum um HM og strákana okkar. Að lokum heyri ég svo í Bödda Bergs og við tölum um handboltalandsliðið, bikarinn í körfu, enska boltann og svo margt fleira. Njótið og ÁFRAM ÍSLAND.

Friday Jan 13, 2023
720.þáttur. Mín skoðun. 13012023
Friday Jan 13, 2023
Friday Jan 13, 2023
Heil og sæl. Í dag er aldeilis fjör. Þrír viðmælendur. Handboltagoðsagnirnar Viggó Sigurðsson og Sigurður Valur Sveinsson eru á línunni og einnig hinn eini sanni Böddi Bergs (Böðvar Bergsson). Nóg um að tala, handbolti, körfubolti og fótbolti. Njótið og ÁFRAM ÍSLAND.

Thursday Jan 12, 2023
719.þáttur. Mín skoðun. 12012023
Thursday Jan 12, 2023
Thursday Jan 12, 2023
Heil og sæl. Nóg um að vera í dag. Svanhvít Valtýsdóttir er á línunni um enska boltann, íslenska landsliðið, ítalska boltann og margt fleira. Benedikt Guðmundsson körfuboltaþjálfari er á línunni um úrslitin í bikarnum í körfunni sem eru á laugardag. Síðastur en ekki sístur er svo Siggi Sveins handboltagoðsögn en Ísland hefur leik á HM í kvöld. ÁFRAM ÍSLAND.

Monday Jan 09, 2023
718.þáttur. Mín skoðun. 09012023
Monday Jan 09, 2023
Monday Jan 09, 2023
Heil og sæl. Í dag heyri ég í tveimur aðilum. Kristinn Hjartarson talar við mig um enska boltann, Íslandsmótið í Futzal, handboltann og svo ítarlega um Ísland-Eistland í fótbolta sem fór fram í gær. Því næst hringi ég í Óskar Bjarna Óskarsson, handboltagúrú, og við ræðum um strákana okkar í landsliðinu sem mætti Þýskalandi í tvígang um helgina. Hvernig er staðan á liðinu og við hverju megum við búast á fimmtudag? Njótið dagsins.

